Magma eykur hlut sinn í HS Orku í 84,21%
Þann 17. ágúst gekk Magma Energy Sweden A.B. frá greiðslu á 38,03% hlut Geysi Green Energy í HS Or...
Lesa meira
Viðtal við Ásgeir Margeirsson í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, var gestur í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni þar...
Lesa meira
Magma eignast hlut Geysis Green Energy í HS Orku
Magma eignast hlut Geysis Green Energy í HS Orku Orkuauðlindir verða ekki í eigu Magma Energy Viðr...
Lesa meira
Magma á Íslandi
Magma á Íslandi ehf. er dótturfélag jarðhitafyrirtækisins Magma Energy Corporation. Magma Energy Corp. er stór hluthafi í HS Orku í gegnum dótturfyrirtæki sitt í Svíþjóð, Magma Energy Sweden AB. Forstjóri Magma á Íslandi er Ásgeir Margeirsson.
Með stofnun dótturfélags á Íslandi vill Magma undirstrika mikilvægi Íslands í uppbyggingu félagsins á alþjóðavísu og fylgja eftir fjárfestingum sínum hér á landi, til að styðja við starfsemi og uppbyggingu HS Orku. Starfsmenn Magma á Íslandi sinna verkefnum Magma á Íslandi en koma einnig að jarðhitaverkefnum Magma Energy Corp. um heim allan.
Magma Energy Corp. er alþjóðlegt jarðhitafyrirtæki sem vinnur við rannsóknir, þróun og rekstur á jarðhitafyrirtækjum og er með starfsemi á vesturströnd Bandaríkjanna, Íslandi og Suður-Ameríku. Magma er almenningshlutafélag, skráð í kauphöllinni í Toronto í Kanada (TSX : MXY). Stofnandi Magma og forstjóri, Ross J. Beaty, er jarðfræðingur og umsvifamikill kaupsýslumaður með hátt í 40 ára reynslu í nýtingu auðlinda á alþjóðavettvangi. Ross J. Beaty hefur einnig tekið þátt í stofnun fjölda annarra alþjóðlegra hlutafélaga í nýtingu auðlinda og á hann farsælan feril á því sviði allt frá árinu 1985.



